BIG MAP 2008-2009 er komið út. Kortið kemur út í tæplega 200 þúsund eintökum og er prentað hjá Prentmet.
Þessi útgáfa af BIG MAP er sú sjötta á jafn mörgum árum og hefur kortið alltaf verið prentað á Íslandi.
Kortinu er dreift á öllum helstu stöðum þar sem ferðamenn eiga erindi á höfuðborgarsvæðinu og á suðvesturhorni landins s.s. hótelum, bílaleigum, upplýsingamiðstöðvum, verslunum, öllum söluskrifstofum Kynnisferða, ferðaskrifstofum og fleiri stöðum. Á landsbyggðinni er kortinu dreift á stærstu upplýsingamiðstöðvum. Kortið er til dreifingar á bensínstöðvum N1. Kortið fer einnig í talsverðu magni til útlanda þar sem erlendar ferðaskrifstofur dreifa því með ferðagögnum.
BIG MAP eru þrjú kort í einu þ.e. höfuðborgarsvæðið í heild sinni, Ísland og Akureyri. Sú nýjung er í kortinu að nú geta notendur flett upp upplýsingum á netinu um þá staði sem merktir eru á kortið. Við köllum þetta TravelText og er táknið (tt) er merkt á víða á kortið. Hægt er að fara t.d. á www.bigmap.is/gullfoss og fá þar upplýsingar um Gullfoss. Þessar síður er einnig hægt að nota í smartsíma eða lófatölvu þar sem viðmótið er mjög einfalt.
Annar möguleiki á netinu er tæmandi götuskrá fyrir allt höfuðborgarsvæðið. Þessi möguleiki er mjög hentugur fyrir starfsfólk ferðaþjónustu sem þarf að beina fólki á ákveðna götu og getur á einfaldan og fljótlegan hátt flett upp í hvaða reit viðkomandi gata er á kortinu. Götuskrána er að finna undir slóðinni www.bigmap.is/index
Hægt er að fá kortið sent með því að smella hér
